Brynjar níelsson: „ég held að það verði ekki komist hjá því að þetta verði skoðað af fjármálaeftirlitinu“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það verði ekki komist fram hjá því að fjármálaeftirlitið skoði það sem hefur verið að gerast að undanförnu hjá fjárfestingarsjóðum Gamma. Í þættinum Stóru Málin, sem sýndur er hér á Hringbraut, sagði hann að þetta mál væri mjög sérstakt og alveg óskiljanlegt.

„Fyrir mér er þetta eitthvað undarlegt. Maður skilur þetta ekki. Ég held að það verði ekki komist hjá því að þetta verði skoðað af fjármálaeftirlitinu og auðvitað innan félagsins og krufið alveg hvernig þetta gat gerst. Þetta er mjög sérstakt og alveg óskiljanlegt eins og þetta lítur út fyrir mér núna. Ég ætla ekki að koma með stórar yfirlýsingar núna, ég þarf að vita miklu meira um þetta mál, en þetta lítur alveg hræðilega illa út,“ segir Brynjar.

Þáttinn í heild sinni má sjá hér að neðan.