Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður og núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir að ef íslenskir vinstri menn skilja ekki núna mikilvægi þess að lýðræðisþjóðir myndi með sér varnarbandalag muni þeir aldrei gera það.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Brynjars.
„Það er erfitt að vera vinstri maður þegar veruleikinn bankar upp á. Frá því að ég man eftir mér hafa íslenskir vinstri menn kennt Bandaríkjamönnum, NATO og Ísrael um allt sem aflaga hefur farið í heiminum. Innrásir gömlu Sovétríkjanna í nágrannalöndin, stríð milli landa í mið-austurlöndum og borgarastyrjaldir þar og hryðjuverk islamista voru þessum, þjóðum að kenna.
Meira að segja báru þær ábyrgð á hryðjuverkum Rauðu herdeildanna og Bader-Meinhof samtakanna á áttunda áratug síðustu aldar. Auðvaldsskipulagið knúði þetta fólk með fallegu hugsjónina til voðaverka,“ segir Brynjar meðal annars í færslu sinni.
Brynjar segir íslenska vinstri menn nú engjast um á fésbókarsíðu sósíalista þegar veruleikinn blasir við þeim við innrás Rússa í Úkraínu.
„Má líkja því við alvarlega tilvistarkreppu. Innrásin er auðvitað fordæmd af þeim, enda ekki annað hægt, en ábyrgðin liggur meira og minna hjá NATO. Og auðvitað eru þeir allir sammála um að Putin er hægri maður, eins og aðrir gamlir sósíalistar sem hafa ofboðið heiminum með ógnarstjórn og voðaverkum.“
Að sögn Brynjars munu íslenskir vinstri menn aldrei skilja mikilvægi þess að lýðræðisþjóðir myndi með sér varnarbandalag ef þeir geri það ekki nú þegar.
„En þegar betur er gáð hafa sósíalistar alla tíð hatað vestrænt lýðræði. Þess vegna munu þeir vera andvígir varnarbandalagi lýðræðisþjóða, hvort sem nefnist NATO eða eitthvað annað,“ segir Bynjar í færslu sinni að lokum.