Brynjar: „mér finnst margt skrítið í þessu“ – oddný: „þarf skoða viðskiptasiðferði gamma“

„Ég held að menn muni spyrja, hvert var hlutverk FME? Hver átti að fylgjast með og hvenær og segja til um að þarna væri eitthvað ekki í lagi? Ég hugsa að það verði líka að skoða viðskiptasiðferði í félaginu, viðskipti við tengda aðila og vinnustaðamóral. Við þurfum að kalla eftir þessu.“

Þetta sagði Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Silfrinu fyrr í dag. Bætti Oddný við að það þyrfti að skoða viðskiptasiðferði fjárfestingarsjóðsins Gamma eftir að í ljós kom fyrr í vikunni að eigið fé sjóðsins hafi nánast þurrkast upp. Eignir voru metnar á 4,4 milljarða um síðustu áramót en er nú metið á 42 milljónir. Brynjar Níelsson var einnig gestur í þættinum og sagðist hann vilja gefa forsvarsmönnum sjóðsins svigrúm til að skoða ofan í kjölinn hvað hefði farið úrskeiðis. Brynjar Níelsson sagði:

„Menn byrja strax að gefa í skyn að hér séu blekkingar og eitthvað refsivert. Mér finnst margt skrítið í þessu. En það er alltaf bent á einhvern annan. Leyfum mönnum að skoða þetta.“

Þá sagði Oddný:

„Það sem ég er ánægð með núna er þessi ríka krafa um skýringar strax og að menn ætli ekki að sætta sig við svona viðskiptahætti. Ef eitthvað bull er undirliggjandi, viðskiptasiðferði sem ekki er nægilega gott, þá verði sett stopp á slíkt. Ég er ánægð með viðbrögðin, þó ég sé ekki ánægð með þetta ferli.“