„Eftir að stofnanir og fyrirtæki fylltust af mannauðsstjórum hefur ófriður aldrei verið meiri,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í pistli á Facebook í gær. Pistillinn er eflaust ritaður í léttum dúr og má skynja örlitla háð í skrifum Brynjars.
„Nú er svo komið að mikilvægar stofnanir eru nánast óhæfar,“ heldur hann áfram og á þá að öllum líkindum til dæmis um stöðuna sem nú er uppi hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
„Á mínu heimili er bara einn forstjóri og hann stjórnar. Þar eru engin frekjuköst liðin og þar eru engin veikindaleyfi vegna kulnunar,“ segir þingmaðurinn svo að lokum. Færslan hefur vakið nokkra lukku meðal vina Brynjars á Facebook sem segjast margir hverjir ætla að fá að prenta textann út og hengja upp inni á heimilum sínum.