Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir MBL.is, vefmiðil Morgunblaðsins, harðlega fyrir aðræða við Þorvald Gylfason, hagfræðiprófessor, um sölu Íslandsbanka.
Þorvaldur sagði að salan minnti hann á þegar Búnaðarbankinn og Landsbankinn voru seldir nokkrum árum fyrir hrun. Eign ríkisins í Íslandsbanka hafi verð seld á undirverði til að „hákarlar“, fjársterkir aðilar, geti keypt bankann síðar.
Gekk þetta fram af Brynjari sem segir: „Hver ritstýrir eiginlega þessum vefmiðli sem gengur undir nafninu mbl.is? Þar er tekið langt viðtal við Þorvald Gylfason um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka, af öllum mönnum, eins og þar sé á ferð hlutlaus háskólaprófessor,“ segir Brynjar á Facebook. „Þessi ágæti maður trúir því að sala ónýtra ríkisbanka um síðustu aldamót, sem kostuðu skattgreiðendur stórfé alla tíð, hafi valdið bankakreppu í öllum heiminum og að sala nú á litlum hlut ríkisins í banka sem við fengum óvænt og óumbeðið upp í hendurnar valdi annarri bankakreppu.“
Brynjar segir þetta einsdæmi í heiminum:
„Það dettur ekki nokkurri annarri þjóð í hug, sem eitthvert vit er í, að láta skattgreiðendur sita uppi með alla áhættu af fjármálastarfsemi í landinu. Og það er örugglega hvergi annars staðar í heiminum sem stærsti vefmiðilinn er án ritstjórnar.“