Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Sjálfstæðisflokkurinn ætli ekki í ríkisstjórn nema að fá 25 prósent atkvæða í komandi Alþingiskosningum. „Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki í stjórn nema hann nái góðri kosningu. Hann verður að vera yfir 25 prósent. Annars eru menn að kjósa í aðra átt,“ segir Brynjar í kosningaþætti Hringbrautar sem verður sýndur í kvöld.
Brynjar segir ekki hollt og gott fyrir lýðræði í landinu að hafa marga litla flokka í stjórn. „Það er mikilvægt fyrir stjórnmál í landinu að það sé öflugir flokkar en ekki tíu til tuttugu smáflokkar. Ég vil alvöru sterka flokka,“ sagði hann.