Brynjar fer mikinn: Fordómar og misnotkun á valdi – „Afleitir lögreglumenn“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Ásmundarsalarmálið vera lítilfjörlegt mál, lögreglumenn hafi sýnt fordóma í garð Sjálfstæðismanna og það séu afleitir lögreglumenn sem eigi við sönnunargögn líkt og upptökurnar úr búkmyndavélum.

Brynjar fer mikinn um málið á bæði Facebook og grein á Vísi.

„Aldrei hefur jafn lítiðfjörlegt mál hlotið aðra eins umfjöllun. Vissulega var óheppilegt að fjámálaráðherra skyldi mæta á þessa sölusýningu við þær aðstæður sem voru í samfélaginu á þeim tíma, sem hann hefur beðist afsökunar á. Þar með lauk því máli enda engin bot á lögum þar, eins og niðurstaða rannsóknar leiddi í ljós,“ segir Brynjar á Facebook.

„Nú hefur eftirlitsnefnd með störfum lögreglu gert alvarlegar athugasemdir við starfshætti lögreglunnar í tengslum við þetta mál allt saman. Þá gerðust þau undur og stórmerki að þeir stjórnmálamenn sem hafa verið uppteknir af öflugu eftirliti með störfum lögreglu risu skyndilega upp á afturfæturna.“

Brynjar segir reynt að tortryggja störf eftirlitsnefndarinnar í pólitískum tilgangi. „Þeir eru svo stupid, eins og sagt er á útlensku, að þeir telja rétt að þeir sjálfir sem þingmenn rannsaki og kveði uppúr með það hvort niðurstaða eftirlitsnefndarinnar sé lögfræðilega rétt. Og þetta fólk telur sig sérstaka baráttumenn fyrir gagnsæi og betri stjórnmálum og gegn spillingu og óheiðarleika. Í fræðunum eru þessi vinnurögð ágætis dæmi um spillingu og misnotkun á pólitísku valdi.“

Hann segir svo í grein á Vísi að meðferð lögreglunnar á efni úr búkmyndavélum lögreglumannanna sem fóru í Ásmundarsal á Þorláksmessu flokkist undir það að átt hafi verið við sönnunargögn.

„Það sem fram kemur í búkmyndavél eru sönnunargögn. Lögreglumenn sem telja það ekki eftir sér að breyta sönnunargögnum ef þau henta þeim ekki eru afleitir lögreglumenn,“ segir hann. „Ef svo er komið fyrir íslensku lögreglunni er hætt við að traust hennar bíði alvarlegan hnekki til mikils tjóns fyrir íslenskt samfélag.“

Þá segir hann lögreglumennina hafa sýnt fordóma með tali um framapotara í Sjálfstæðisflokknum. „Þar skipti mestu máli að þarna voru að mati lögreglumannanna sjálfra, „sjálfstæðis framapotarar“ og þjóðþekktir einstaklingar. Eins og oft vill verða þegar fordómar villa mönnum sýn þá verður sannleikurinn í aukahlutverki. Í fréttatilkynningunni var því upphaflega haldið fram að um einkasamkvæmi hefði verið að ræða þar sem reglum um fjöldatakmarkanir voru ekki virtar. Þetta reyndist hvort tveggja rangt og hefði væntanlega komið í ljós ef lögreglumennirnir hefðu gætt hlutlægra vinnubragða í stað þess að reyna að koma höggi á fólk á grundvelli pólitískra viðhorfa.“