Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Utanríkisráðherra, greinir nú frá ferðum sína um Kaupmannahöfn á Facebook, þar sem hann er staddur ásamt maka, Arnfríði Einarsdóttur, í tilefni að 35 ára hjúskaparafmæli þeirra.
Sögur Brynjars eru fyndnar og skemmtilegar. Hann segir meðal annars frá rifrildum sínum og Arnfríðar, sem hann kallar reyndar Soffíu í færslum sínum.
„Konunni minni finnst ég ekkert sérstaklega fyndinn og frekar þreytt á þessum endalausu sögum mínum af heimilislífinu, sem eiga ekkert erindi til almennings fyrir utan að vera að mestu upplognar. Ég hafi ekki efni á að tala um sjálfhverfu blaðamanna eða athyglissýki annarra. Þá hefur hún bannað mér að kalla sig Soffíu.“ skrifar Brynjar meðal annars.
Brynjar greinir meðal annars frá því að lítið sé um rafskútur í Kaupmannahöfn, en eins og frægt er orðið lenti hann í slysi á einni slíkri í fyrra. Hann segir að þrátt fyrir það hafi hann ekki komist óslasaður úr ferðinni.
„Það gladdi hins vegar konuna að hér í Köben eru engar rafskútur í boði. Taldi þá líklegt að ég kæmist skaðlaus úr ferðinni. Henni varð þó ekki að ósk sinni. Þar sem ég stóð í sturtu í baðkarinu féll ég gegnum um skilrúmið, yfir klósettið og lenti undir vaskinum. Er nú allur marinn og blár og sennilega með brákuð rifbein í annað sinn á fáum mánuðum.“
Síðan virðist Brynjar hafa farið til læknis, en frásögn hans af þeirri heimsókn er kostuleg.
„Eftir slysið í sturtunni í gær fór konan með mig í starfsgetumat hjá dönskum lækni. Hann komst að því að starfsgeta mín væri lítil sem engin en taldi að slysið hafi ekki skipt máli í því mati. Það var þó niðurstaða hans að ég gæti borið hæfilega þunga innkaupapoka. Ef ég væri Pírati eða í Samfylkingunni væri ég ekki í vafa um að einhver spilling spilaði þarna inn í og greitt hafi verið undir borðið.“
Í lok síðustu færslu Brynjars segir hann Arnfríði ætla að segja upp starfi sínu og opna smurbrauðsstofu, líklega er hann að grínast þar, en færslan endar á þessum orðum: „Ég rétt náði að ýta á enter áður en tölvan var rifin af mér. Þetta er því síðasta færsla mín í bráð.“