Brynjar er hrokafullur

Páll Valur Björnsson, sem sat á þingi á síðasta kjörtíimabili fyrir Bjartra framtíð, er allt annað en ánægður með Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfsæðisflokks og viðbrögð hans við þeim launahækkunum sem kjararáð hefur ætlað æðstu embættismönnum.

„Þetta er sami maðurinn og felldi ásamt öðrum stjórnarþingmönnum afturvirkar launabætur til handa öldruðum og öryrkjum um síðustu jól. Þetta er sami maðurinn og saup hveljur yfir því að minnihluta þingmenn vildu ekki samþykkja almannatryggingafrumvarp félagsmálaráðherra í haust og felldi allar breytingartillögur minnihlutans. Kallaði það „fáránlegar yfirborðstillögur“ sem engin innstæða væri fyrir og taldi afstöðu stjórnarandstöðunnar til skammar. Sagði þetta frumvarp sem fulltrúar eldri borgara og öryrkja kölluðu „hungurlús“ og „meingallað hænufet“ gífurlega miklar kjarabætur og eiga sér enga hliðstæðu,“ skrifar Páll Valur á Facebook.

Páll Valur bendir á stöðu þeirra sem minnst fá: „Neyslukönnun Hagstofunnar segir að framfærsla einhleypings til þess að hann geti lifað mannsæmandi lífi sé 320 þúsund eftir skatt, það er um 30 þúsundum minna en Brynjar og félagar hans eru að fá við þessa rausnarlegu launahækkun frá Kjararáði. Er alveg sammála því að alþingismenn eigi að vera á góðum launum en þessi aðferðafræði við að hækka laun þeirra er algerlega galin. Síðan er það mín skoðun að þingmenn eigi að sýna fólkinu í landinu virðingu og auðmýkt og vera þeim fyrirmynd. Hroki er löstur og hann er galli í mannlegum samskiptum, hrokafullt fólk finnst það yfir aðra hafið og leggur sig ekki í líma við að setja sig í spor annarra.“