Brynjar dæmir Ráðherrann: „Klént“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það megi hafa gaman af þáttunum Ráðherrann en þeim hafi mistekist herfilega að varpa ljósi á stjórnmál á Íslandi ef það hafi verið áætlunin.

Brynjar rætti stuttlega við DV um þáttinn, þá sagði hann: „Þátturinn er ekki raunsönn lýsing á íslenskum stjórnmálum, sem er svo sem allt í lagi. Væri hann raunsönn lýsing myndi það drepa áhorfendur úr leiðindum.“ Í dag birti hann ítarlegri dóm á Facebook, nú þegar tveir þættir eru komnir út, sem hann segir hafa verið saminn í stúkunni hjá Prúðuleikurunum þar sem hann átti náðuga stund með Jóni Viðari.

„Nú er kannski ekki ljóst hvort þessum sjónvarpsþætti var ætlað að varpa ljósi á stjórnmál á Íslandi og hvernig hlutirnir gerast undir yfirborðinu. Hafi það verið ætlunin mistókst það herfilega og þarf ekki frekari sannana við í þeim efnum en að Birni Leví skyldi finnast þættirnir vera nærri veruleikanum í íslenskum stjórnmálum,“ segir Brynjar. „Verst hvað öll þessi gredda og kynlíf í stjórnmálum hafa farið framhjá mér. Það kunna þó að vera eðlilegar skýringar á því.“

Hann segir handritið vera klént. „Handritið er klént, eins og einhver myndi segja, og persónurnar flestar ósannfærandi. Á það einkum við Ráðherrann sjálfan.“

Það eru þó ljósir punktar. „Leikurinn er samt þokkalegur, sérstaklega hjá Þorvaldi Davíð, sem er afar sannfærandi. Hann er sennilega bestur íslenskra leikara um þessar mundir þótt að hann leiki lítið. Svo er hún Elva Ósk alltaf svo góð og sjarmerandi.“

Brynjar er ekki sáttur við hljóðið. „Eins og í öllum íslenskum sjónvarpsþáttum er hljóðið þannig að ég heyri oft ekki nema annað hvert orð. Heyrði þótt betur í öðrum þætti í gær. Ástæðan kann að vera önnur en sú að hljóðið sé lélegt án þess að farið sé nánar út í það.“

Brynjar endar þetta svo á jákvæðu nótunum:

„Þrátt fyrir þetta allt má hafa gaman af Ráðherranum. Er það ekki tilgangurinn?“