Brynjar: bjarni hættir sem formaður – guðlaugur fer til namibíu og kemur ekki aftur

Óska landsmönnum öllum farsældar á nýju ári og þakka samfylgdina á árinu sem er að líða. Læt fylgja með þessari kveðju völvuspá sem ég fékk í hendur. Völva þessi hefur reynst sannspá í gegnum tíðina. Hún spáði því meðal annars að margar fjölskyldur myndu lenda í fjárhagserfiðleikum eftir að bankarnir hrundu 2008. Völvuspáin var svona orðrétt:

„Samfylkingin og Píratar munu setja á laggirnar stjórnmálaskóla með sérstaka áherslu á fágun og góða siði. Björn Leví og Helgi Hrafn verða með námskeið í því hvernig á að tala í löngu máli um ekki neitt. Skólastjórinn, Þórhildur Sunna, mun fara í saumana á Freka Karlinum og hvernig hann breyttist í konu á örskömmum tíma. Halldóra Mogensen verður með fyrirlestraröð um hvernig losna eigi við þennan vonda hagvöxt og auka útgjöld til velferðarmála um leið. Fyrirlestraröðin ber yfirskriftina:

„Hvernig búa eigi í hliðarveruleika“.

Þá munu Helga Vala og Þórhildur Sunna kenna saman námskeið um heiðarleika og gott siðferði í stjórnmálum.

Formannsskipti verða í Sjálfstæðisflokknum. Bjarni hættir í haust og Jón Gunnarsson verður nýr formaður. Hann mun breyta flokknum í björgunarsveit og á endanum sameinast Landsbjörgu.

Þegar fjölmiðlafrumvarpið verður samþykkt með atkvæðum stjórnarandstöðunnar mun Óli Björn hætta á þingi og flytja aftur á Sauðárkrók og taka við bakaríi afa síns. Njáll Trausti hættir einnig á þingi og tekur við umsjón með flugvöllum NATO í Asíu. Guðlaugur Þór fer í heimsókn til Namibíu í sumar en kemur ekki til baka.

Miðflokkurinn og Framsókn sameinast á árinu. Bergþór Ólason mun taka við af Þórhildi Sunnu sem formaður laganefndar Evrópuráðsins. Vg mun friðlýsa allt Ísland og flokkinn um leið. Inga Sæland mun ná á árinu að halda sömu ræðuna í þúsundasta skipti, sem mun vera met. Logi hættir sem formaður Samfylkingarinnar eftir sigur í þættinum:

„Allir geta dansað“.

Úti í hinum stóra heimi mun það helst gerast að Mannréttindadómstóll Evrópu mun kveða upp dóm um að þingræðið sé í andstöðu við mannréttindasáttmálann og hér eftir verði sérfræðingar og fagfólk að stjórna landinu.

Í fjölskyldu þinni mun ekkert gerast frekar en fyrri daginn. Þó mun bróðir þinn á Spáni verða vinsæll einkaþjálfari í suður Evrópu.

Svo mörg voru þau orð.