Flugfreyjan og fyrirsætan Brynja Nordquist sergir að hún hefði betur hætt að drekka fyrr, en hún er í forsíðuviðtali nýjasta heftis MAN sem kemur í verslanir á morgun.
Brynja segir opinskátt frá uppvextinum, fjölskyldunni, sambandi sínu við Þórhall Gunnarsson sem vakti athygli þegar það hófst fyrir 21 ári fyrir þær sakir að hann er 10 árum yngri en hún. Þeim varð aldrei barna auðið en Brynja segir m.a. frá því að þau hafi skoðað möguleikann á því en verið sagt að hún væri orðin of gömul, þá rétt um fertugt.
Fyrir tæpu ári ákvað Brynja að hætta að drekka áfengi og hefur sótt kvennafundi AA samtakanna upp frá því. Hún segir áfengið hafa verið farið að fara sér illa og hún hafa tekið eftir því að hún yrði of full, finndi of mikið á sér: \"Ég held að það tengist aldrinum að þola vín verr,\" segir Brynja einlæg en hún er 62 ára gömul.
Það hafi vakið hana til umhugsunar þegar sonarsonurinn og augasteinn hennar hafi sagt við hana: \"Amma, þú ert skrítin!\" og ákveðið þá að það gengi ekki lengur að vera undir áhrifum fyrir framan barnið.
MAn er í ritstjórn Bjarkar Eiðsdóttur, sem einnig er þáttastjórnandi á Hringbraut, en ný þáttaröð með Kvennaráðum hennar er væntanleg síðar í vetur.