Brynhildur og stefán karl í helginni

Það skortir ekki umræðuefnin þegar leikarinn og leikstjórinn góðkunni, Karl Ágúst Úlfsson tekur sjálfan sig og gesti sína til kostanna í sjónvarpsþættinum Helginni á Hringbraut í kvöld.


Inngangsorð Karls Ágústs í þættinum eru orðin fræg að endemum en þar dregur hann þjóð sína saman í háði og spotti og helstu gerendur fréttanna hverju sinni fá heldur betur að finna til tevatnsins. Og hann þarf ekki að kvarta núna; vikan sem brátt er að baki er hlaðin slíkum ólíkindafréttum að Karl þarf enga sérstaka aðstoð við að skreyta þátt sinn skemmtisögunum.  


Gestir Karls Ágústs að þessu sinni eru leikararnir Brynhildur Guðjónsdóttir og Stefán Karl Stefánsson og þau munu skoða vikuna og sérkenni hennar af gaumgæfni ásamt því að segja frá því helsta sem þau eru að taka sér fyrir hendur um þessar mundir.


Helgin er frumsýnd klukkan 20.00 í kvöld.


Smelltu til að horfa á klippur úr þættinum: