Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi þingmaður, verður viðmælandi dagsins í hádegisútvarpi Hringbrautar. Brynhyldur, sem sat á þingi fyrir Bjarta framtíð, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Af öðrum ólöstuðum hafa aðrir þingmenn ekki sinnt neytendamálum jafnvel og Brynhildur gerði. Áður var hún ritstjóri Neytendablaðsins og í því starfi skrifaði hún nokkuð un landbúnaðinn og kerfið í kringum hann.
Sigurjón M. Egilsson, sem einnig er fyrrverandi ritstjóri Neytendablaðsins, er stjórnandi og þátturinn hefst klukkan 12:30.
Útvarpstíðni útvarps Hringbrautar er þessi:
89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri