Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrum alþingismaður Samfylkingarinnar, fyrrum rektor Bifrastarháskóla og núverandi starfsmannastjóri Landsspítalans, hefur verið skipuð í embætti ríkissáttarsemjara til fimm ára af Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Bryndís tekur við embætti ríkissáttasemjara 1. júní næstkomandi af Magnúsi Péturssyni sem gegnt hefur embættinu frá árinu 2008. Hún var var önnur tveggja umsækjenda sem taldir voru hæfastir til að gegna embættinu að áliti sérstakrar nefndar sem ráðherra skipaði til að leggja mat á hæfni umsækjenda.
Í niðurstöðu hæfnisnefndarinnar segir að helstu styrkleikar Bryndísar séu reynsla hennar af störfum þar sem reynt hefur á leiðtogahæfileika hennar, auk þekkingar hennar á kjarasamningsumhverfinu í störfum sínum sem lögfræðingur Alþýðusambands Íslands: „Jafnframt er ljóst að Bryndís hefur notið trausts í störfum sínum þar sem henni hefur meðal annars verið falið að gegna störfum sem þingflokksformaður og falin seta í stjórnum fyrirtækja. Þá mun án efa reynsla hennar af þátttöku í stjórnmálum geta nýst henni í starfi sem ríkissáttasemjari. Nefndin metur Bryndísi mjög vel hæfa til að gegna embætti ríkissáttasemjara“ segir í áliti hæfnisnefndarinnar sem skipuð var Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur, skrifstofustjóra í velferðarráðuneytinu, Magnúsi M. Norðdal fulltrúa samtaka launafólks og Hrafnhildi Stefánsdóttur fulltrúa samtaka atvinnurekenda. Í niðurstöðu hennar segir enn fremur að þótt nefndin telji tvo umsækjenda um embættið mjög vel hæfa til að gegna því gefi fjölbreyttari reynsla Bryndísar henni ákveðið forskot til að gegna embættinu.
Alls sóttu átta um starfið, en þeir voru auk Bryndísar, Dagný Rut Haraldsdóttir, Erna Einarsdóttir, Guðjón Helgi Egilsson, Guðmundur Halldórsson, Kolbrún Ásta Bjarnadóttir, Þorsteinn Þorsteinsson og Þórólfur Geir Matthíasson.