Bryndís kemur jóni baldvin til varnar

"JBH flutti enga slíka ræðu og þar af leiðir gekk enginn út í mótmælaskyni," segir Bryndís Schram eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi sendiherra í Bandaríkjunum sem liggur undir þungum ásökunum í nýrri bók Björns Jóns Bragasonar um bankahrunið, en þar er því haldið fram að ósiðleg framkoma Jóns Baldvins í sendiráðinu ytra í aðdraganda hrunsins hafi átt sinn þátt í því að Bandaríkjamenn sýndu íslenskum stjórnvöldum fálæti á haustmánuðum 2008. Jón átti að hafa úthúðað Bandaríkjunum í kveðjuhófi í sendiráðinu, svo mjög raunar að einn bandarískur embættismaður er sagður hafa gengið á dyr.


Þar með eru tvær mögnuðustu sögurnar um Jón Baldvin í bókinni í algeru uppnámi, því hin sagan, sem gekk út á það að Jón Baldvin hefði hent erindreka út í sundlaugina á staðnum, hefur verið dregin til baka af syni Jóns Baldvins, Glúmi Baldvinssyni sem sagði í frétta á hringbraut.is um helgina að það hefði verið hann sem kastaði manninum út í laugina, raunar eftir að sá hinn sami hafi beðið um það.


Bryndís Schram segir í samtali við Stundina að kveðjuhóf hafi ekki verið haldið í sendiráðinu haustið 2002 af þeirri einföldu ástæðu að kveðjuhóf vina þeirra úti í bæ hafi verið orðin svo mörg að þeim Jóni hafi ekki þótt ástæða til að halda enn eitt í sendiráðinu. "Það var sumsé ekkert kveðjuhóf á vegum sendiráðsins," áréttar hún og finnst þar af leiðandi nokkuð undarlegt að heyra af sögum á prenti þess efnis að maður sinn hafi úthúðað Bandaríkjunum í kveðjuhófi í sendiráðinu, hófi sem aldrei hafi verið haldið.