Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari hefur tekið ávörðun um að bjóða sig ekki fram til embættis Forseta Íslands.
Bryndís var skv. heimildum Hringbrautar komin vel á veg með undirbúningsvinnu, heimasíðu og fleiri þætti en hefur nú skv. heimildum Hringbrautar tilkynnt stuðningsfólki að ekkert verði af því.
Baráttan um Bessastaði hefur tekið vendingum síðustu daga en Andri Snær Magnason rithöfundur steig fram á mánudag.
Í viðtali Hringbrautar við Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing í morgun sagði Guðni að hann myndi tilkynna sína ákvörðun í næstu viku. Hefur svar hans um að sú ákvörðun verði sífellt auðveldari vegna mikils stuðnings verið túlkuð sem svo að Guðni muni fara fram.