Birgitta Jónsdóttir segir að ekki verði farið beint í að afglæpavæða og setja vín í búðir ef Píratar komist til valda að loknum þingkosningum 2017. Meginverkefnið sé ný stjórnarskrá. Gera þurfi grundvallarbreytingar á samfélaginu til að fyrirbyggja annað hrun. Forgangsmál sé að stöðva spillingu sem grasseri í íslensku samfélagi. Þá sé ekkert traust fyrir hendi hjá þjóðinni í frekari einkavæðingu banka á sama tíma og ekki sé búið að framkvæma rannsókn á síðustu einkavæðingu bankanna.
Þetta kom fram í Harmageddon á Stöð 2 í gærkvöld.
Þar sagði Birgitta einnig að hún hugsaði ekki um ráðherrastóla. Spurð hvort hún væri til í samstarf með VG, sagðist hún ekki útiloka það.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sat einnig fyrir svörum í þættinum. Þær Birgitta voru sammála um að samþykkt þingsályktunartillaga um rannsókn síðustu einkavæðingar bankanna þyrfri að fara fram áður en ráðist verður í frekari einkavæðingu. Þrátt fyrir samþykktina árið 2012 hefur ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ekki látið verða af rannsókninni.