Bryggjan: „það eru alltaf ógnir“

„Það eru alltaf ógnir“ ,segir Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar hjá Íslandssögu á Suðureyri þar sem 70 manns starfa, þar af 20 úti á sjó.

Bryggjan þáttur um sjávarútveg heimsótti nokkur fyrirtæki fyrir á Vestfjörðum í liðinni viku, á Ísafirði, Bolungarvík, Flateyri, Suðureyri og í Hnífsdal.

Fiskivinnslan útvegar 70 manns vinnu, þar af 20 úti á sjó en reksturinn er viðkvæmur og óstöðugur. Alltaf eru ógnir gagnvart starfseminni og störfunum sem hún útvegar, segir Óðinn: „Og helsta ógnin akkúrat í dag, ef við berum saman viði síðasta ár sem var ágætt, þá í ár er það breyting á gengi íslensku krónunnar. Þetta er veruleg ógn við reksturinn núna”, segir Óðinn í næsta þætti Bryggjunnar.

Fiskvinnslan á Suðureyri gerir sjálf út tvo línubáta og hafa um ellefu hundruð tonna fiskkvóta frá eigin bátum. Íslandssaga skiptir við tvo báta til viðbótar sem hafa heimilidir upp á 500 tonn. Alls er kvótinn því 1600 tonn. 

Fiskvinnslan hefur enn fremur samning við Byggðastofnun um sérstakan byggðakvóta. Honum er skipt á milli þeirra útgerða sem eru á svæðinu. Allt í allt er kvóti upp á um tvö þúsund tonn, segir Óðinn í samtali við Bryggjuna.

Árlega er verið að vinna á milli 3500 til 4000 tonn sem er þá þessi kvóti sem talinn er upp hér og strandveiðiafli sem hefur aukist undanfarin ár.  „Það skiptir okkur verulegu máli“, segir Óðinn um strandveiðikvótann.  Íslandssaga fékk um 500 tonn af strandveiðiafla í fyrra. „Molar eru líka brauð í þessu”, segir Óðinn um þann hluta veiðiaflans. 

Óðinn bendur þó á að fiskvinnslan sé með góðan samning við hraðfrystihúsið Gunnvöru á Ísafirði þar öll ýsan sem togarar þeirra veiða fæst keypt. Slíkt skiptir verulegu máli þegar tryggja þarf vinnslu þá daga þegar veður eru vond.

Íslandssaga hefur líka byggt upp ferðaþjónustu í tengslum við fiskvinnsluna sem er sérstakt af hálfu þess konar fyrirtækis. Um 60 prósent af afurðum, frystum og ferskum fiski flytur fyrirtækið út til Bandaríkjanna.