Bryggjan sýnir áfram frá ferð til Vestfjarða á dögunum. Heimsækjum fullkomnustu og stærsta rækjuvinnslu landsins, Kampa sem er á Ísafirði. Ræðum við Albert Haraldsson, framleiðslustjóra
Kampi selur 90 prósent afurðarinnar til Bretlands og í vinnsluna koma reglulega fulltrúar stærstu viðskiptavinanna til að skoða aðstæður, Svo sem frá Tesco og Morrison - það er mikið aðhald því gæðaeftirlit innan Bretlands kemur líka í tékkferðir auk innlends eftirlits.
Kampi er líka með mjölvinnslu í Bolungarvík, þar sem rækjuskelin er notið til að gera rækjumjöl. Þetta er gjörnýting.
Útgerðarfélagið Birnir á stærsti hluthafinn í Kampa og gerir úr tvö togskip sem veiða m.a. rækju.
Hlutverk skipstjórans hefur oft verið sveipað dýrðarljóma. En ábyrgðin er mikil og starfið ólíkt öllu öðru. Sölvi settist niður með Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi skipstjóra, sem fór í fyrsta túrinn 1959, hann var í brúnni í á fimmta áratug þar til fyrir skömmu.