„Það var ekkert skjól á dekkinu. Við í brúnni við fylgdumst með hverju handtaki, alveg út í gegn. Til að passa upp á mennina\", segja þeir Ragnar Franzson og Svavar Benediktsson sem eru á níræðis og tíræðisaldri. Þeir segja eftirminnilega frá þeim tíma þegar þeir unnu á síðutogurum, frá háseta upp í brúnna.
„Hættan var margföld á síðutogurunum, vírarnir runnu framhjá mönnunum þar sem þeir voru að vinna og það urðu stundum slys\", segir Ragnar og Svavar bætir við: „Það varð einu sinni slys þar sem bilaði vírapolli og drap nokkra menn\".
Hópur manna sem deilir þeirri reynslu er nýfarinn að hittast með reglubundnum hætti og fá sér kaffi á Sjóminjasafninu við Granda. Vinir félagar aðrir hafa farist.
Linda Blöndal hittir í þættinum Bryggjunni í kvöld þá karla sem unnu við einstaklega erfiðar aðstæður, nokkuð sem lagðist af uppúr eftir 1970. Reynsla þessara manna er nokkuð sem sjómenn í dag eða fólk almennt getur varla almennt gert sér í hugarlund, svo harneskjulegar voru aðstæður. Ragnar og Svavar, segja þó menn ekki hafa þekkt neitt annað og ekki kvartað. Hins vegar varð mannfall mikið á köflum, enda steyptust togararnir undir sjó stundum og drógu menn með sér út á haf.
Margar myndir frá liðnum tíma á síðutogurum eru birtar í þættinum með góðfúslegu leyfi Hafliða Óskarssonar á Húsavík.
Annar þáttur Bryggjunnar er á dagskrá í kvöld, mánudag kl.22. Þátturinn fjallar um sjávarútveginn fyrr og nú. Þáttur kvöldsins ber þess merki að bæði þarf að horfa framá við og líka til baka og læra af sögunni. Umsjón hafa Linda Blöndal og Sölvi Tryggvason.