Bryggjan: sjávarbyggðir og svalþúfa

Gauti Jóhannesson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sveitarstjóri Djúpavogshrepps á sunnanverður austfjörðum mætir á Bryggjuna í kvöld.

Hann fer yfir það helsta um áhrif verkfallsins á sjávarbyggðirnar. Aðallega eru það tapaðar útsvarstekjur og töpuð hafnargjöld. Í samtökunum eru 26 sveitarfélög, þau reiða sig á þessa tekjurstofna mismikið, allt fá um fimmtungi af heildartekjum til yfir 80 prósent þeirra.

 Fiskvinnslan Svalþúfa í Hafnarfirði heimsótt. Rætt við Magnús Gylfason og farið um hjá fiskhjöllum fyrirtækisins sem eru einstaklega flottir. Svalþúfa hefur sérhæft í fullnýtingu fiskafurða og hefur vinnsla afskurðs skipað stóran sess í því. Fyrirtækið hefur jafnframt því saltað þorsk til útflutnings sem og verkað skreið.

Gauti Jóhannesson sagði sjávarbyggðunum ekki hafa verið gefinn gaumir í verkfallinu eins og hefði þurft, mest hefði borið á deiluaðilum og landvinnslufólkið og samfélögin  í kringum fiskveiðar hafi orðið útundan:

 

 Magnús Gylfason tók vel á móti bryggjunni og ræddi meðal annars um kvikula erlenda markaði í Afríku.