Bryggjan hefur göngu sína

Bryggj­an er nýr þátt­ur á Hringbraut um fjöl­breytt­an heim sjáv­ar­út­vegs­ins á Íslandi og hefur göngu sína á mánudagskvöldið 14.nóvember.

Þátt­ur­inn verður á dag­skrá Hring­braut öll mánu­dags­kvöld­ kl. 21.30 og er í um­sjón Lindu Blön­dal, Sölva Tryggva­son­ar, Friðþjófs Helga­son­ar kvik­mynda­gerðar­manns, Hauks Sig­ur­björns­son­ar töku­manns og Sverr­is Sig­fús­son­ar, tækn­i­stjóra Hring­braut­ar.

Rætt verður við fólkið sem nýt­ir verðmæt­in úr sjón­um bæði fyrr og nú. Ný­sköp­un­in verði skoðuð og fjallað um tengsl Íslend­inga við hafið í gegn­um tíðina.

Nýj­ar sög­ur og gaml­ar verða sagðar sem varpa ljósi á mik­il­væg­asta at­vinnu­veg þjóðar­inn­ar í gegn­um árin. Tök­ur hafa staðið yfir síðustu daga og und­ir­bún­ing­ur frá því snemma í haust. Viðmæl­end­ur verða bæði af lands­byggðinni sem og af höfuðborg­ar­svæðinu, en sem dæmi má nefna að í fyrsta þætti Bryggj­unn­ar verður fisk­vinnsl­an Vis­ir í Grinda­vík sótt heim. Þá verður rætt við for­svars­menn SFS og Sjáv­ar­klas­ans.

Bryggj­an er eitt stærsta fram­leiðslu­verk­efnið sem Hring­braut hef­ur ráðist í til þessa og eini sjón­varpsþátt­ur­inn á Íslandi sem helg­ar sig sam­tali um sjáv­ar­út­veg­inn.