Bryggjan fer á loðnuveiðar

Linda Blönda og Friðþjófur Helgason tökumaður fara í kvöld í ferð með Víkingi AK-100 frá Akranesi og út á Faxaflóa. Bryggjan sýnir frá 12 tíma ferð á loðnu í byrjun mánaðarins, á nótaveiðar með þar sem meira en 1500 tonn komu í nótina á einum degi eða frá morgni til miðnættis.

Skipið Víkingur er nýtt og stórt, tekur tæplega 3000 tonn og var tekið í notkun fyrir ári síðan. Það er í eigu HB Granda. Skipin Víkingur og Venus í sömu eigu hafa skipst á að fara út og koma til baka á Skagann þar sem vinnslan tekur við í landi. Stundum hefur þó verið landað fyrir austan. 

Loðnuveiðin hefur verið með eindæmum góð undanfarna daga og mikið veitt. Stímið er tekið á miðin víðs vegar af landinu. Loðnutorfurnar hafa farið um Faxaflóann  síðastliðna sólarhringa. Hrygnan er dýrmætust og allt kapp er lagt á að ná henni áður en hún kemur inn í Breiðafjörð, jafnvel enn norðar, og hrygnir þar og drepst.

Bryggjan er frumsýn Kl.21 og svo endursýnd. Einnig á tímaflakkinu.

Hér er brot úr ferð Bryggjunnar þann 4.mars síðastliðinn: