Sannkallaður brunagaddur hefur verið á landinu að undanförnu og er útlit fyrir að frost verði mikið víða á landinu í dag. Spáin gerirr ráð fyrir hægum vindi og bjartviðri frameftir degi og því kjöraðstæður fyrir frostið að ná sér strik.
Aðstæður sem þessar voru einnig fyrir hendi í gærdag en þá mældist tæplega 20 stiga frost á Mývatni og á flugvellinum á Akureyri. Dálítil snjókoma eða él halda áfram Austanlands fram yfir hádegi, en léttir síðan til. Einnig eru líkur á stöku éljum allra vestast í dag, en þau verða ekki efnismikil að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofunni.
Búist er við sunnanátt með hlýnandi veðri á morgun og snjókomu eða slyddu Vestanlands í fyrstu, en rigningu undir kvöld. Fyrir austan verður áfram bjart meginhluta dags en dregur úr frosti.Eftir það tekur frekar átakalítið veður við á miðvikudag og fimmtudag.
Þá er hæg suðlæg eða breytileg átt. Víða bjart veður, en él austantil fram yfir hádegi og stöku él við vesturströndina. Frost 2 til 15 stig, mest inn til landsins. Sunnan og suðvestan 5-10 m/s á morgun með snjókomu eða slyddu á vestanverðu landinu, en síðar rigningu við sjóinn og hlánar. Hægari austantil og bjartviðri fram á kvöld með minnkandi frosti.