Enn kólnar þennan veturinn og má búast við hörkubáli fram að páskahelginni, jafnvel að brunafrostið fari vel niður fyrir tíu gráðurnar á suðvestanverðu landinu nú um miðja vikuna með bjartviðri og fremur stilltu veðri, en snjókomu og éljum í öðrum landshlutum. Hann snýr sér svo ekki úr norðrinu fyrr en á föstudaginn langa þegar hlýir vindar byrja að blása úr suðaustri með tilheyrandi rigningu og allhvössum vindum á köflum. Veðrið um páskana verður með öðrum orðum þokkalegt víðast hvar um landið.
Sjálft páskahretið kemur loks eftir páskana sjálfa ef marka má norsku langtímaspána en miklar umhleypingar gerir fram i aðra viku aprílmánaðar ef þær spár ganga eftir með hvassviðri og mikill ofankomu sem þó gæti orðið blautari en svo að jörðin hvítni að ráði.
Greiðfært er um allt land en hálka víða á vegum. Þæfingsfærð er þó á stöku stað á Tröllaskaga og skafrenningur eystra, svo sem á Fjarðarheiði og á Fagradal.