Öldrunarþjónusta úti á landi er víða til svo mikillar fyrirmyndar að hún laðar brottflutta að sem vilja, sakir aðstæðna, verja efri árunum á sínum gömlu heimaslóðum.
Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Okkar fólk á Hringbraut í gærkvöld sem er í umsjá Helga Péturssonar, sem farið hefur hringinn í kringum landið síðustu vikur og mánuði til að kynna sér aðstæður eldra fólksins á Íslandi, en sjálfur er tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn kunni að verða 67 ára á næsta ári og því farinn að huga að sínum eigin efri árum.
Helgi fer ásamt Friðþjófi Helgasyni kvikmyndatökumanni um norðanverða Vestfirði í þætti kvöldsins en þar hafa nýlega risið tvö ný og glæsileg hjúkrunarheimili. Í þættinum er rætt við starfsfólk í öldunarþjónustu á Ísafirði og í Bolungarvík og jafnframt talað við hjón sem fluttu að nýju vestur eftir langa dvöl annars staðar.
Okkar fólk í umsjón Helga Péturssonar er endursýnt í dag og einnig sjáanlegt hér á hringbraut.is.