Brotamenn óttast alla fræðslu

Þorbjörg Sveinsdóttir starfsmaður í Barnahúsi sagði í þættinum Fólk með Sirrý á þriðjudagskvöld að gerendur í kynferðisofbeldi vinni gegn því að börn fái fræðslu um einkastaði líkamans og kynferðislegt ofbeldi. Það sé þeim kappsmál að börn fræðist sem minnst um þessi atriði.


Hún benti á í þættinum að það fái ekki öll börn slíka fræðslu hjá foreldrum sínum og því sé mikilvægt að leikskólar, grunnskólar og aðrir veiti slíka fræðslu með reglubundnum hætti. Og sumt fræðsluefni fyrir börn er sýnt áður en foreldrar eru látnir vita af því til þess að ná líka til þeirra barna sem annars fengju ekki að mæta þegar fræðslan er veitt.


Í þættinum var líka rætt við Sigríði Björnsdóttur hjá félagssamtökunum Blátt áfram um bókina ,,Einkastaðir líkamans" og annað forvarnarefni sem er í boði. Fleiri sérfræðingar tóku þátt í umræðunni og ræddu hvað samfélagið geti gert til að koma í veg fyrir að börn séu beitt kynferðislegu ofbeldi. Fram kom í þætttinum að samkvæmt rannsóknum verða 17% barna fyrir kynferðislegu ofbeldi á einhvern hátt.