Brot lögreglumannsins varða allt að tveggja ára fangelsi - reyndi að hindra mál sonarins

Tæplega sextugur lögreglumaður sem starfað hefur hjá lögreglunni á Suðurnesjum sætir ákæru fyrir brot í opinberu starfi. Er hann ákærður fyrir að hafa ítrekað flett upp máli sonar síns sem kærður var fyrir of hraðan akstur ásamt því að reyna að hindra framgang málsins.

Vísir greinir frá því að lögreglumaðurinn hafi flett upp máli sonar síns í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE alls tólf sinnum á þriggja vikna tímabili. Uppflettingarnar tengdust starfi lögreglumannsins ekki og varða brot hans allt að tveggja ára fangelsi.

Brot þetta er ekki einsdæmi en fyrir um fjórum árum var sami lögreglumaður ákærður fyrir að hafa flett upp nöfnum kvenna í  LÖKE án ástæðu en var sá ákæruliður síðar felldur niður þar sem ekki taldist sannað að uppflettingar á konunum hefðu ekki tengst starfi lögreglumannsins.