Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sem var skipuð lögreglustjóri af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrrverandi dómsmálaráðherra án auglýsingar, skipaði síðar bróður ráðherrans í yfirmannsstöðu án auglýsingar. Þetta kemur fram í Stundinni.
Alls hafa fimm af tíu yfirstjórnendum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið ráðnir án auglýsinga. Í öllum tilfellum var gerð undanþágu á stjórnsýslulögum um að auglýsa skuli öll laus störf. Sjálf var Sigríður Björk Guðjónsdóttir skipuð lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu haustið 2014 án auglýsingar og var þar notuð undanþágu frá stjórnsýslulögum.
Theodór Kristjánsson, var ráðinn aðstoðaryfirlögregluþjónn árið 2008 án auglýsingar, en Theodór er bróðir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Hanna Birna var sá ráðherra sem skipaði Sigríði Björk sem lögreglustjóra án auglýsingar. Theodór var svo fluttur tímabundið í stöðu yfirlögregluþjóns í ár án auglýsingar.
Fram kemur í svörum lögreglu við fyrirspurn Stundarinnar um málið að Theodór hafi verið „fluttur tímabundið í stöðu yfirlögregluþjóns þann 1. apríl 2019 á grundvelli 36. gr.“. Samkvæmt bréfi sem dómsmálaráðuneytið sendi lögreglustjórum landsins í vor á hins vegar 36. gr. starfsmannalaga fyrst og fremst við þegar um varanlega ráðstöfun er að ræða, enda hvergi í 36. gr. kveðið á um heimild til að flytja menn tímabundið á milli embætta í formi setningar.