Brjóstakrabbi: ísland sker sig úr

Dánartíðni kvenna af völdum brjóstakrabbameins hefur aukist hér á landi frá árinu 2005, gagnstætt þróun í öðrum ríkjum OECD sem eru þau lönd sem íslensk yfirvöld bera sig helst og mest við.

Þetta kemur fram í fyrsta kafla skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD sem nefnist Health at a Glance 2017, en þar er varpað ljósi á stöðu OECD-landanna hvað varðar heilbrigði og árangur heilbrigðiskerfisins. Fimm atriði eru skoðuð: Heilbrigði, áhættuþættir heilbrigðis, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, gæði og árangur þjónustunnar og fjármagn og mannauður í heilbrigðiskerfinu.

Helsta niðurstaða skýrslunnar er að íslenska heilbrigðiskerfið sé nálægt meðaltali OECD-ríkjanna - og þótt áðurnefnd dánartíðni af völdum brjóstakrabba sé meiri hér en þekkist víðast hvar í téðum löndum fær kerfið hér á landi nokkuð þokkalega einkunn. Þannig er bent á í skýrslunni að Ísland hefur mestar lífslíkur hjá körlum, eða 81,2 ár. Þá er bent á að Ísland er meðal þeirra landa sem hefur flesta hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða samanlagt.

Þá vekur það loks athygli í skýrslunni að Ísland liggur töluvert undir OECD meðaltali varðandi bólusetningar eins árs barna og á það sérstaklega við um bólusetningu gegn mislingum.