Brimskaflar fúkyrða úr flokknum

"Flugvallarskýrslan sem birt var í síðustu viku er gott dæmi um hvernig losa  má um pólitíska rembihnúta," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is, en segir ofhermi að halda því fram að skýrslan hafi leyst málið. 

"Hitt er ótvírætt," segir hann "að með henni má breyta skotgröfum í vettvang fyrir rökræðu og ákvarðanir."

Hann segir skýrsluna vera prófstein á pólitíkina: "Það er ekki tillagan um að skoða frekar nýtt flugvallarstæði í Hvassahrauni sem losar um rembihnútinn. Lykillinn að lausninni er aftur á móti sú tilslökun borgaryfirvalda að lýsa sig reiðubúin til að taka málið úr þeim læsta tímaramma sem þau höfðu sett það í með skipulagsákvörðunum." Og hann segir ennfremur: "Á móti er lagt til að  Reykjavíkurborg fái viðurkenningu ríkisins á því að rétt sé að skoða aðra kosti. En það á ekki aðeins við um ríkið heldur einnig Icelandair sem er stærsti flugrekandinn í innanlandsfluginu og átti einnig aðild að nefndinni. Kjarninn er sá að skýrslan gerir ráð fyrir að allir aðilar stigi varfærnisleg skref í átt til sátta og nýrra tækifæra."

Hann vekur sérstaka athygli á tvenns konar viðbrögðum við skýrslunni: "Helstu talsmenn grasrótarsamtaka sem talað hafa fyrir flugvelli í Vatnsmýrinni hafa tekið skýrslunni fremur vel. Þeir benda réttilega á að lagt er til að Reykjavíkurborg fallist á að tryggja frið um rekstur flugvallarins þar meðan málið er kannað frekar. Þetta eru málefnaleg viðbrögð og lýsa skilningi á kjarna málsins." Og hins vegar: "Forystumenn Framsóknar í ríkisstjórn og á Alþingi hafa á hinn bóginn blásið skýrsluna út í hafsauga. Ráðherra ferðamála sem kemur úr Sjálfstæðisflokknum hefur líka gefið skýrslunni langt nef. Hvort þessi viðbrögð fela í sér endanlega afstöðu ríkisstjórnarinnar verður ekkert fullyrt um á þessu stigi."

Í þessu efni gagnrýnir hann sinn gamla flokk: "Þessi málefnalegu viðbrögð hafa leitt til þess að brimskaflar fúkyrða og brigsla innan úr Sjálfstæðisflokknum hafa brotnað á leiðtoga minnihlutans í borgarstjórn og fyrrverandi innanríkisráðherra, sem kom nefndarstarfinu af stað. Boðskapurinn er eins og í Framsókn: Hreinar línur; engar málamiðlanir."

Aðalatriði sé þó það að skýrslan gefi tilefni til að breyta um kúrs í umræðunni, en það hljóti að teljast nauðsynlegt.

Lesa pistil Þorsteins