Gunnbjörg Óladóttir, aðstoðarmaður forstjóra Brims, segir um skýringar þess að Kleifabergið sem Brim gerir út og var sektað af norska sjóhernum vegna fiskiveiðibrots við strendur Noregs þar sem skipið var á ólöglegum ýsuveiðum, að fleiri íslensk skip hafi lent í því sama og Brim.
\"Þetta snýst um það að skipin hala inn í tveimur atrennum meiri meðafla af ýsu en gert var ráð fyrir áður innan lögsögu Noregs. Þar sem skipstjórinn gefur upp afladagbók til yfirvalda kemur í ljós að ýsan hafði farið yfir þessi nýju mörk og Norðmenn eru sérstaklega viðkvæmir fyrir ýsunni sinni þetta misserið og grípa því til þessara ráða. Slíka afladagbók gefa menn ekki upp ef þeir telja sig vera í hnuplleiðangri eins og skynsamir menn ættu að gera sér ljóst,\" segir Gunnbjörg í skriflegu svari við fyrirspurn Hringbrautar.
Fram kom í frétt Hringbrautar í morgun þar sem vitnað var til Stundarinnar sem greindi fyrst frá málinu, að HB Grandi hefði einnig þurft að greiða sekt vegna brots sem norski sjóherinn stóð Þerneyju að við veiðar á ýsu við strendur Noregs.
Gunnbjörg segir fréttir bera keim af æsingi sem einkenni nú alla umræðu um sjávarútveg. Hún vitnar í svari sínu til viðbragða sem skapast hafa í athugasemdakerfi Stundarinnar vegna frétta af brotunum. Ef menn hefðu talið sig vera að brjóta lög hefðu þeir örugglega reynt að fela slóð sína. Allt í einu hafi Norðmenn komið með nýja túlkun á reglum sem sé harkaleg en það verði bara að taka því. Sú framsetning að draga hefði átt skipin til lands sé fjarri sannleikanum sem og tilvísanir í glæpamennsku í kommentum. Í athugasemdum Norðmanna við frétt norska sjóhersins á facebook eru íslensku sjómennirnir kallaðir \"bandítar\".
Í umræðunni hefur verið bent á að félög sem græði milljarða árlega vegna veiða úr sameiginlegri auðlind landsmanna þurfi ekki að brjóta reglur annarra sjávarútvegsþjóða til að hafa það gott. Sem fyrr segir vísar aðstoðarmaður forstjóra Brims því á bug að útgerðin hafi vísvitandi ætlað sér að hnupla fiski.
Uppfært kl. 17.42: Grandi hefur nú sent tilkynningu þar sem sjónarmið félagsins koma fram. Þar segir:
\"Síðastliðinn laugardag komu aðilar frá norsku strandgæslunni um borð í Þerney, skip HB Granda sem er við veiðar við Noreg. Ástæða heimsóknarinnar var veiðitilhögun skipsins á ýsu í síðustu veiðiferð skipsins á þessum slóðum. Í samningi á milli Noregs og Íslands um þorskveiðar í norskri landhelgi kemur fram leyfilegt magn af meðafla eins og ýsu. Íslensku skipunum er óheimilt að draga veiðarfæri aftur yfir slóð sem hefur gefið of mikinn meðafla. Það hefur hins vegar ekki verið talið nægilega skýrt t.d. hversu langt frá slóðinni skal farið til að mega hefja veiðar á ný. Við reglulega skoðun norsku strandgæslunnar kom fram að meira var af ýsu sem meðafla með þorski en heimild er fyrir, en meðaflinn var samviskusamlega skráður í veiðidagbækur skipsins. Strandgæsla og lögregla í Tromsö kynntu útgerðinni og skipstjóra gögn málsins og upplýsti aðila um þær reglur sem skipið hefði brotið í umræddri veiðiferð. Gengist var við brotinu án athugasemda og málinu lauk með sektargreiðslu. Eftir að samkomulag náðist hélt Þerney aftur til veiða. HB Grandi leggur mikla áherslu ábyrga umgengni um auðlindir sjávar bæði innan íslenskrar landhelgi sem utan. Því er þessi niðurstaða norsku strandgæslunnar sem við véfengjum ekki félaginu mikil vonbrigði og í framhaldi verður farið gaumgæfilega yfir málið til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.\"