„Samkeppnin er kannski sýnilegust innbyrðis milli þessara þriggja stóru íslensku banka. Þeir auðvitað keppa um lán til einstaklinga vegna fasteigna, sem lífeyrissjóðirnir eru líka að veita, það er mikil samkeppni. Síðan er mikil samkeppni auðvitað við bankanna, sem er kannski ekki jafn sýnileg, erlendis frá. Þó það séu engir erlendir bankar hér með starfsstöð þá eru sérstaklega veitt lán til stórra fyrirtækja og slíkt, það er alveg opið. Það er bein samkeppni við erlenda banka,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, aðspurð um hvort það sé nægileg samkeppni á bankamarkaði á Íslandi.
Unnur var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Í viðtalinu ræddi hún einnig áform um sameiningu FME og Seðlabanka Íslands, ný heildarlög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og tillögur sem er að finna í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið.
Aðspurð um hvort stóru bankarnir séu tilbúnir til sölu núna og hvort regluverkið sem sett hefur verið upp eftir hrun sé nægilega sterkt til að koma í veg fyrir að samskonar athæfi eigi sér stað nú og átti sér stað áður segir Unnur að það sé háð mati eigenda hvort það sé rétti tíminn til þess að selja, þ.e. hvort það séu réttar markaðsaðstæður og annað þess háttar. Eitt sé að selja, annað sé að kaupendur, í þeim mæli að vera virkir eigendur, þurfi að standast mat á hæfi. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á löggjöf og eftirliti miði svo allar að því að það sem gerðist árið 2008 endurtaki sig ekki.