Alþingi hafnaði í dag að tekin yrði á dagskrá tillaga Pírata um frumvarp um hvernig stjórnarskránni er breytt.
Í því fólst að hægt yrði að breyta stjórnarskránni á næsta kjörtímabili og leggja þær breytingar fyrir þjóðina í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Nú tekur hins vegar aftur gildi hið upprunalega breytingaákvæði stjórnarskrárinnar, þ.e. að henni verði aðeins breytt með samþykki tveggja þinga og fari alþingiskosningar fram á milli.
Aðeins Píratar og Samfylking studdu tillöguna, flestir þingmenn Viðreisnar sátu hjá, en Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur, Vinstri græn og Björt framtíð greiddu atkvæði á móti.
Það er í samræmi við samkomulag sem þessir flokkar gerðu með sér um þingstörfin. Í þeim samningaviðræðum er Sjálfstæðisflokkurinn sagður hafa hótað málþófi fram að kosningum ef með þyrfti, frekar en að þessi tillaga fengi efnislega meðferð.
Þjóðin samþykkti í atkvæðagreiðslu haustið 2012 að tillögur stjórnlagaráðs skyldu verða að mestu grunnurinn að nýrri stjórnarskrá. Þegar ljóst var að samkomulag næðist ekki um slíka afgreiðslu fyrir þingkosningar 2013 beitti Árni Páll Árnason sér fyrir nýju breytingarákvæði í stjórnarskrána, sem allir flokkar samþykktu.
Tillaga Pírata er að stofni til sama efnis, en fær nú ekki afgreiðslu.