Katrín S. Óladóttir er framkvæmdastjóri og meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Hagvangur hf. Hún hefur góða yfirsýn yfir þær breytingar sem orðið hafa á vinnumarkaði á Íslandi.
Viðskiptablaðið ræddi við Katrínu um þessar breytingar.
Katrín segir að í dag sé enginn munur á ungum konum og ungum körlum sem eru að fóta sig á vinnumarkaðnum eftir háskólanám. Það er ekkert sem hindrar konur í að þær nái framgangi. Hún fullyrðir að við ráðningar er ekki horft kynbundið á lausnina.
Katrín segir að hún hafi gagnrýnt konur örlítið fyrir það að þegar stjórnunarstörf eru auglýst finnist henni halla á að konur sæki um. Þær sækja ekki eins um og karlar.
Katrín telur að konur þurfi að einhverju leiti að líta í eiginn barm. Vilji konur ná einhverjum árangri verði þær að bera sig eftir því segir Katrín.
rtá
Nánar www.vb.is www.hagvangur.is