Breytingar á söngkeppni sagðar svívirða

\"Mikið er ég stoltur af nemendum okkar hér í VA. Þau láta ekki allt ganga yfir sig. Framkoma skipuleggjenda þeirra sem ætla sér að halda Söngkeppni framhaldsskólanna er náttúrulega hreinasta svívirða,\" segir Pjetur St. Arason vegna þeirrar ákvörðunar Verkmenntaskóla Austurlands að hætta við að þátttöku í Söngkeponi framhaldsskólanna í ár. Fram hefur komið sú hugmynd að skólarnir á landsbyggðunum standi sameignlega að nýrri keppni.


Rúv hefur grent frá því að sex framhaldsskólar utan höfuðborgarsvæðisins hafi ákveðið að taka ekki þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna í ár vegna fyrirhugaðra breytinga sem gerðar hafa verið á keppninni. Nemendafélög Verkmenntaskóla Austurlands, Framhaldsskólans á Laugum, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, Menntaskólans á Tröllaskaga, MA og Verkmenntaskólans á Akureyri hafa öll ákveðið að draga sig úr keppni.

Á Facebook síðu Verkmenntaskóla Austurlands kemur fram að breytingarnar feli í sér að aðeins tólf skólar muni senda fulltrúa í aðalkeppninni. Til að eiga möguleika á því að komast í þann hóp verði hver skóli að senda inn upptöku af sínu atriði til dómnefndarinnar sem velji atriðin tólf í keppnina. Hver skóli borgi síðan 40 þúsund krónur fyrir það að senda inn upptöku ásamt því að fá aðgang að æfingahelgi fyrir keppnina í Reykjavík. Þeir skólar sem komast í lokakeppnina þurfi síðan að borga 30 þúsund krónur til viðbótar í þátttökugjald og skuldbinda sig til að selja 20 miða til nemda sinna á aðalkeppnina.

Nemendafélag Verkmenntaskóla Austurlands segir breytingarnar koma sér sérstaklega illa fyrir litla skóla á landsbyggðinni. Bæði sé þátttökugjaldið of hátt og ekkert tillit sé tekið til aukakostnaðar sem lendi á nemendafélögum úti á landi við að senda keppendur tvisvar til Reykjavíkur. Skólar af höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni sitji því ekki við sama borð, eftir því sem fram kemur í frétt Rúv.

Í tilkynningu frá MA segir að allir skólar þurfi að borga þátttökugjald óháð því hvort þeir komist í gegnum niðurskurðinn eða ekki. Þeir skólar sem svo fái tækifæri til að flytja atriði sitt í keppninni þurfi svo að greiða frekara þátttökugjald auk þess að vera skylt að selja 20 miða á keppnina með tilheyrandi ferðakostnaði fyrir skóla, sérstaklega af landsbyggðinni. Breytingarnar séu ekki til bóta hvorki fyrir keppendur né framhaldsskólanemendur almennt. 

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir í umræðu um byggðamál á facebook vegna málsins: \"Nú geta framhaldsskólanemar ekki unnið saman og enn myndast gjá á milli höfuðborgar og landsbyggðar. Við verðum að hafa kjark til að taka á þessu vandamáli - höfuðborgarsvæðið vs. landsbyggðin - og geta rætt okkur niður á sameiginlega niðurstöðu en þá verða allir að slaka á sínum kröfum. Óþarfa tillitsleysi, ósamstaða og rígur liðar þessa þjóð í sundur. Samstaða um heildarhagsmuni er allt sem þarf. Samkeppni er holl en hún þarf að vera heilbrigð og fara fram á jafnréttisgrunni.\"

Söngkeppni framhaldsskólanna 2016 verður haldin 9. apríl í Reykjavík, í Stúdíó Saga Film, Laugarvegi 176. Keppnin er haldin í samstarfi Sambands íslenskra framhaldsskóla og Saga Film en hún var árum saman fastur viðburður á Akureyri og var þá horft til þess að hafa hana miðsvæðis á landinu.