Breyta tillögu vegna braggamálsins

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, og Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hafa breytt tillögu sinni um að vísa skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna braggamálsins til héraðssaksóknara til frekari yfirferðar og rannsóknar. Vigdís tilkynnti nýja tillögu við upphaf borgarstjórnarfundar í dag, þar sem hvergi er minnst á að vísa skýrslunni til héraðssaksóknara. RÚV.is greinir frá.

Ný tillaga Vigdísar og Kolbrúnar hljóðar svo:

„Borgarstjórn samþykkir að fela embætti borgarlögmanns að vísa skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkur sem ber heitið Nauthólsvegur 100 til þar til bærra yfirvalda til yfirferðar og rannsóknar. Jafnframt verði sama embætti falið að senda niðurstöður Borgarskjalasafns á skjalamálum í sama máli áfram þegar þær liggja fyrir.“

Tillagan var felld, þar sem 13 borgarfulltrúar greiddu atkvæði gegn henni, átta borgarfulltrúar greiddu atkvæði með henni og tveir sátu hjá.