Breyta þarf gjaldtöku vegna fjölgunar rafbíla

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, seg­ist gera sér grein fyrir því að það verði alltaf ein­hverjir ósáttir við sam­göngu­á­ætlun og vilji meira fjár­magn til nýfram­kvæmda. Hann telur þó að mik­il­vægum áföngum verði náð á næstu árum.

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, við Sig­urð Inga í þætt­inum 21 á Hring­braut sem ­sýndur var miðvikudaginn 26.sept.

Sig­urður Ingi minnti einnig á starfs­hóp sem sé að störfum sem hefur það hlut­verk að skoða gjald­töku í vega­kerf­inu. Það séu verk­efni í sam­göngu­á­ætlun sem eru kannski ekki fyr­ir­huguð á allra næstu árum sem hægt væri að taka út úr henni og fram­kvæma með gjald­töku.

 Ráð­herr­ann ræddi einnig þá stöðu sem breyt­ing á bíla­flota þjóð­ar­innar mun skapa varð­andi tekju­öflun rík­is­ins til sam­göngu­verk­efna

Peningar sem fást í rík­is­kass­ann vegna elds­neyt­is­gjalda muni fara minnk­andi á næstu árum sam­hliða fjölgun raf­bíla og ann­arra bíla sem ganga fyrir umhverf­is­vænni orku­gjöf­um. „Þeir þurfa þá að greiða fyrir notkun sína af vega­kerf­inu. Og þess vegna erum við að horfa á breyt­ingu á gjald­tök­unni. Það er orðað í sam­göngu­á­ætl­un­inn­i.“

 Í þætt­inum ræðir Sig­urður Ingi einnig ítar­lega um aðra þætti sam­göngu­á­ætl­un­ar, borg­ar­línu og fram­tíð­ar­á­form um almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stöðu flug­fé­lag­anna á Íslandi, þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki og rík­is­stjórn­ar­sam­starf­ið.

Nánar á www.kjarninn.is