Aðgerðanetið Beinar aðgerðir lýsir yfir ánægju yfir miklum viðbrögðum samfélagsins og umræðunni sem hefur skapast við auglýstum mótmælum við heimili Bjarna Benediktssonar, eins og segir í tilkynningu frá samtökunum. \"Samfélagsumræða og þátttaka í henni er alltaf af hinu góða og er nauðsynleg lýðræðinu, ekki síst beinu lýðræði. Því fögnum við þessari gífurlegu virkni og vonum að hún nýtist okkur öllum í baráttunni. Við höfum farið vandlega yfir allar athugasemdir og þótt sjálfsagt að bregðast við. Sérstaklega við þeirri gagnrýni að viðburðurinn sé ekki nógu barnvænn.\"
\"Ólíkt Bjarna Benediktssyni og ríkisstjórn Sigurðar Inga erum við þó fær um að hlusta á raddir almennings varðandi velferð barna og taka þær til greina. Vegna þessa verður atburðurinn endurnefndur „Meðmæli við heimili Bjarna Benediktsonar.“ og einblínt verður á það að gera hann einstaklega fjölskylduvænan þar sem börn Bjarna, eins og önnur börn, verða boðin sérstaklega velkomin, þeim gefið tækifæri á því að taka þátt og leyfa röddum sínum að heyrast,\" segir í tilkynningu hópsins.
\"Hörð viðbrögð við eins saklausum mótmælaatburði koma okkur á sama tíma verulega á óvart. Ekki hefur borið á gagnrýnisröddum gegn mótmælum við heimili forsetans við Bessastaði, og rétt ber að minnast á að miðað var við friðsamlega grillveislustemningu fyrir utan lóðarmörk frá blábyrjun.
Upp í huga okkar kemur tilvitnun í Halldór Laxness um rótgróna meðvirkni í íslensku samfélagi:
„Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri kurteisi en Íslendingar. Um aldaraðir alt fram á þennan dag lifðu þeir í skilningsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreistar. Eingri þjóð var byltingarhugtakið jafn hulið. Ævinlega voru Íslendingar reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sárast beit...“
Krafa okkar stendur enn og er sú sama: Við „mælum með því“ að Bjarni Benediktsson og ríkisstjórnin segi af sér strax og setji niður fasta dagsetningu á kosningar. Við vonumst til þess að sjá sem flesta mæla með afsögn Bjarna í afslappaðri og góðri lautarstemningu!\"
Einnig segir: \"Góðir gjörningar vekja alltaf upp góðar umræður og nokkur virkilega áhugaverð atriði hafa komið upp í umræðunum sem okkur finnst vert að minnast á:
- Umræðan um friðhelgi heimila ( og þar með talið Bjarna) liggur á línu milli hagsmuna einstaklingsins og almannahagsmuna um tjáningarfrelsi. Þegar hagsmunir rekast á er aldrei föst lína heldur er það ávallt matsatriði. Frá okkar sjónarhorni hefur línan milli einkalífs og stjórnmála nú þegar verið færð til af Bjarna og stjórnarliðum með því að að gæta sérhagsmuna í gegnum stjórnmálin, þvert á almannahagsmuni. Þær stefnur sem sprottið hafa upp frá gjörningum auðvaldsstéttarinnar hafa grafið undan einkahagsmunum, gert heimili landsins berskjölduð og gert ungu fólki nærri því ómögulegt að koma undir sig fótunum. Á sama tíma og þær hafa byggt undir fjárhagslega stöðu manneskjunnar Bjarna Benediktssonar, og fært honum aukinn auð og vald.
- Sumum virðist ekki þykja mikið tiltökumál að einstaklingar sem hafa rænt samfélagið peningum og framtíðardraumum, og holað það að innan, skuli fá að sitja í stjórn þangað til þau sjálf ákveði annað. Á meðan þykir afslöppuð fjölskyldustemning fyrir utan lóðamörk heimilis sem viðbrögð við gjörningum stjórnvalda „ljót“ og „siðlaus“ að mati einhverra.\"