Brexit verður bretum böl

Í stað þess að sýna öðrum ESB ríkjum að hægt er vandkvæðalaust að ganga úr Evrópusambandinu mun útganga Breta - Brexit - sýna og sanna að slíkt borgar sig ekki. Þetta segir fjármálaráðherra Finnlands Petteri Orpo. Það teljast tíðindi að ráðherra í ríkisstjórn Finnlands tali um Evrópumál með þessum hætti.

Petteri Orpo varar jafnframt við því sjónarmiði að einhver tækifæri séu falin í Brexit. Öðru nær verður Brexir Bretum böl. Petteri Orpo telur sem sagt ekki ástæðu til hófsemi í umsögn um áform Breta um útgöngu úr ESB.

Petteri Orpo minnir á að Bretar verða fyrst að greiða reikning frá ESB upp á sextíu milljarðra evra áður en svo mikið sem byrjað verður að ræða við Breta um útgöngu úr ESB.

Vera má að Finnland skapi sér nokkra sérstöðu með þessu í Brexit samráði Norðurlandanna en Finnland eitt Norðurlanda í ESB er með evru sem gjaldmiðil. Þá telst Finnland alla jafna fylgja Þýsklandi að í Evrópumálum.

Nánar www.bloomberg.bg/2oXpPBm