Brexit úrlausn er í sjónmáli

Fjölmiðlar fyrr í dag birta þá frétt að ríkisstjórn Stóra-Bretlands leggi fram í Brussel tilboð um greiðslu til Evrópusambandsins (ESB) til að greiða fyrir úrsögn landsins úr ESB. 

Þetta er sögð vera upphæð sem nemur einum sjö þúsund milljörðum íslenskra króna.  Sé þetta rétt ættu samningaviðræður Breta við ESB að færast yfir í aðra lotu sem verða m.a. umræður um samkomulag um fríverslunarkjör og fyrirkomulag samskipta.

[email protected]