Brexit samningur may kolfelldur

Mikill meirihluti þingmanna í neðri deild breska þingsins felldi útgöngusamning Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, vegna Brexit í kvöld. Alls greiddu 432 þingmenn, þar á meðal 118 þingmenn Íhaldsflokks May sjálfrar, gegn samningnum og 202 greiddu atkvæði með honum. RÚV.is og Mbl.is eru meðal þeirra sem greina frá.

Búist hafði verið við því að samningurinn yrði felldur og sagðist May virða niðurstöðuna. Ennþá er áætlað að Bretland gangi úr Evrópusambandinu þann 29. mars næstkomandi en með hvaða hætti, eða hvort það gerist yfir höfuð, er enn óljóst.

Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, lagði fram vantrauststillögu í garð ríkisstjórnar May um leið og niðurstöður atkvæðagreiðslunnar um samninginn lágu fyrir. Búist er við að atkvæðagreiðsla vegna vantrauststillögunnar fari fram á morgun.

May hyggst ekki segja af sér og telur ríkisstjórn sína hafa áfram traust meirihluta þingsins.  May hefur nú þrjá virka daga til að tilkynna hver næstu skref ríkisstjórnarinnar verða vegna Brexit.