Samningur Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, vegna fyrirhugaðrar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu var felldur í neðri deild breska þingsins í þriðja sinn á jafn mörgum mánuðum. Alls greiddu 344 atkvæði gegn samningnum en 286 með honum. Fréttablaðið greinir frá.
Eftir að Bretland virkjaði 50. grein Lissabon-sáttmálans fyrir sléttum tveimur árum átti Bretland að yfirgefa ESB formlega í dag. Á dögunum fékkst þó tveggja vikna viðbótarfrestur frá leiðtogaráði ESB og því liggur það fyrir að breska þingið þarf að gera það upp við sig fyrir 12. apríl hvort Bretland gangi úr sambandinu án samnings eða fresti útgöngu að nýju.
Þingið kaus í mánuðinum gegn því að ganga úr ESB án samnings en sú kosning hefur enga merkingu að svo stöddu. Það er vegna þess að allar tafir fram yfir 12. apríl eru háðar því hvort leiðtogaráðið beiti neitunarheimild sinni. Fari svo að ráðið geri það og enginn Brexit samningur hefur fengist samþykktur fyrir 12. apríl mun Bretland koma til með að neyðast til að ganga úr ESB án samnings.