Bretinn Peter Jon Kellner er stjórnmálskýrandi og blaðamaður að starfi.
Hann skrifar í dag pistil sem hugveitan Carnegie Europe birtir á vefsíðu sinni.
Peter Jon Kellner staðhæfir að lyktir Brexit verði þær að annað hvort verður Stóra-Bretland um kyrrt í Evrópusambandinu (ESB) eða þá að Bretar og ESB gera með sér millibils samkomulag sem verður álikt fullri ESB aðild.
Peter Jon Kellner ræðir lesendum til upprifjunar hvaða endi Brexit áform kunna annars að fá.
Í fyrst lagi að Brexit færir Bretum allt sem þeir óska sér. Þeir hætti allri þátttöku í innri ESB markaðnum. Og ráði einir öllu um ferð vinnuafls til landsins. Og að Evrópudómstóllinn hafi ekkert að segja um bresk mál. Bretar geri svo djarfan og metnaðarfullan fríverslunarsamning við ESB. Þetta má kalla að fá \"Allt fyrir ekkert\" niðurstöðu.
Í öðru lagi að viðræðum Breta og ESB verði slitið án samkomulags af neinu tagi en við það renna Brexit áformin út í sandinn.
Í þriðja lagi að að Bretar gangi úr ESB án þess að niðurstaða hafa fengist í nokkur einasta máli. En að Bretar og ESB sammælist um að halda samskiptum í þrjú ár eins og Bretar væru enn innan ESB.
Í fjórða lagi að Bretar einfaldlega gefist upp og hætti við Brexit og ákveða að vera áfram innan ESB.
Líkur eru á því að eftir því sem tíminn líður þá taki almenningsálitið þeim breitingum að meirihluti vilji hætta við Brexit. Bretar verði því áfram innan ESB.
Peter Jon Kellner telur að rökflækjur Brexit sinna séu að rakna hratt upp. Vaxandi hópur þingmanna í neðri málstofu breska parliamentsins telji að Bretar gangi ekki úr ESB þrátt fyrir allt.
Rökfesta andstæðinga Brexit er að rekja upp rökflækur Brexit sinna.
Nánar www.carnegieeurope.eu