Brexit ferlið gangsett í dag

Theresa May forsætisráðherra Stóra-Bretlands hefur ritað Donald Tusk forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB) bréf. Þar með er útganga Breta úr ESB hafin. Breska ríkisstjórnin áformar að Stóra-Bretland gangi að fullu úr ESB í mars 2019. Fréttaskýrendur eru þó margir með efasemdir um að það ferli sem nú er gangsett verði jafn hnökralaust og af er látið. Breskir stjórnmálamenn láta í veðri vaka að ESB gangi til samninga við Breta um aðgengi að innri markaði ESB og að jafnvel verði gerður víðfeðminn fríverslunarsamningur Breta og ESB. Þetta á eftir að koma í ljós.