Brexit dregst og dregst

Stjórnmálaskýrendur sem starfa við helstu fjölmiðla á Stóra-Bretlandi og í ESB-Evrópu eru á báðum áttum um það hvað vakir fyrir ríkisstjórn Theresa May. 

Nokkkrir þeirra minna á til að hægt sé að gefa skipanir með miklum hraða úr brúnni niður í vélarrúm - án þess að þær verði misskildar - brúki skipstjórnarmenn vélsíma og þar sé að finna bæði \"Slow\" og \"Dead-Slow\" boðunarleiðir og svo \"Stop\".

Nú sé breski Brexit vélsíminn stiltur á boðunarleið \"Dead-Slow\" og stutt geti verið í boðunarleiðina \"Stop\".

Fréttaskýrendur telja örugga heimild fyrir því að í Brussel telji menn Breta vera með undanbrögð vegna deildra meininga um hversu háa upphæði Stóra-Bretland skulu greiða til Evrópusambandsins (ESB) þegar landið gengur úr ESB.

Þetta veldur því að Brexit samningaviðræðum mun ekkert miða áfram fram að áramótum. Þá verður stefnumót ríkisoddvita ESB í Brussel og verður þeim falið það ill leysanlega verkefni að krefja Breta um þeirra hugmyndir um hve há eða lág þeir vilja að þessi greiðsla verði.

ESB er sagt nefna töluna eitt hundrað milljarðar evra. Bretar þegja þunnu hljóði enn sem komið er.

Brexit viðræðum skal lokið í mars árið 2019 en málayktir kunna að verða þær að Brexit samkomulag náist ekki.

Kokhraustir breskir stjórnmálamenn segja að það geri ekkert til því enginn Brexit samningur er betri en vondur Brexit samningur. 

Nánar www.openeurope.org.uk  

[email protected]