Brexit bakþankar

Kerry lávarður skrifar í dag í breska dagblaðið Financial Times. Kerryy lávarður er höfundur 50. greinar Lissabon-sáttmálans en sú grein er um útgöngu aðildarríkis Evrópusambandsins (ESB) úr sambandinu.

Kerry lávarður skrifar að ekki verði horft framhjá því að afar naumur meirihluti breskra kjósenda valdi Brexit leiðina. Með hverjum degi sem líður verði æ ljósara að Brexit færir Bretum að lokum hörmungar.

Í lýðræðissamfélagi er aldrei of seint að hugsa stór og smá mál upp á nýtt. Og velja aðra leið en fyrst var valin.

Kerry lávarður segir að Bretar eigi því að skoða Brexit frá grunni á samráðsfundum um Stóra-Bretland þvert og endilangt þar sem Bretar íhuga af fullri alvöru að skipta um skoðun og stöðva þar með Brexit ferlið.

 

 

Nánar www.ft.com

[email protected]