Breska dagblaðið The Observer birti í dag niðurstöður viðamikillar könnunar um afstöðu Breta til Evrópusambandsins. Meirihlutinn í 341 kjördæmi vill nú vera áfram í Evrópusambandinu en kjósendur í 288 kjördæmum vilja yfirgefa ESB. Þetta eru róttækar breytingar frá því að kosið var um ESB sumarið 2016. Þá vildi meirihlutinn í 403 kjördæmum yfirgefa ESB en 229 kjördæmi vildu áfram tilheyra sambandinu.
Afstaða kjósenda í meira en 100 kjördæmum hefur því breyst á tveimur árum og nú er svo komið að meirihluti Breta myndi styðja áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu ef kosið yrði í dag.
Talið er að það séu aðallega stuðningsmenn Verkamannaflokksins sem hafi skipt um skoðun, breytingin er mest í Norður-Englandi og Wales. Niðurstöður könnunarinnar eru taldar auka þrýsting á Jeremy Corbyn, formann Verkamannaflokksins um að draga úr andstöðu sinni við að Bretland endurskoði afstöðu sína til úrgöngu úr ESB
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/bretum-hefur-snuist-hugur-um-brexit
.