Bretar dragast aftur úr vegna brexit

Hagvöxtur í Bretlandi dregst nú hratt aftur úr öðrum stórþjóðum Evrópu vegna áhrifa af BREXIT eins og skýrt kemur fram á meðfylgjandi mynd.
 
Og allir hagvísar benda í sömu átt: Vegna áhrifa af BREXIT hefur hagvöxtur í Bretlandi dregist saman, pundið hefur veikst, atvinnuleysi hefur aukist og kaupmáttur launatekna í landinu er að dragast saman.
 
Æ betur kemur í ljós, að mati margra sérfræðinga í hagvísindum að Bretar hafa ratað í miklar ógöngur með ákvörðun sinni um úrsögn úr ESB.